Við erum núna sjö listamenn sem starfa hjá Lifandi List. Hér finnuru listamann fyrir þig – ólíkir stílar, ólíkar nálganir og sameiginleg ástríða fyrir faglegu handverki. Við erum samheldið og reynt teymi sem vinnur af alúð og metnaði, og markmið okkar er að hjálpa þér að láta þína sýn verða að veruleika.
Listamenn okkar

Sigga – Eigandi
Ég er búin að flúra í rétt rúmlega þrjú ár. Ég varð lærlingur hérna á Lifandi List og ég sérhæfi mig í öllu sem er bold, fineline og sérstaklega lita verkum. Ég legg mikla áherslu á að veita kúnnunum mínum örugga og faglega þjónustu. Einnig hef ég það að leiðarljósi að öllum líði eins vel og hægt er sem koma til mín.

Gísli – Owner
Ég hef verið að flúra í tæp 10 ár. Lærði undir Svani Tattoo og hef unnið á Lifandi List mest allan minn feril.
Ég hef sérhæft mig í gegnum árin í black & grey realisma, en hef líka mjög gaman af Japanese og American traditional.
Mínar helstu áherslur eru að vinna með fólki til að ná sem bestri útkomu fyrir hvern og einn, að fólki líði vel í stólnum hjá mér og að taka mér tíma til að ná bestu mögulegu útkomu.
Ef ég geri eitthvað, þá vil ég gera það almennilega – annars sleppi ég því.


Aksel
Ég er búinn að flúra síðan 2012. Sérhæfi mig í realism og Neotraditional, mest black and grey en hef haft mjög gaman af að gera lita flúr uppá síðkastið.
Fyrir mér snýst þetta einfaldlega um að gera góð flúr sem endast vel og líta rétt út, sama hvort það er realism eða eitthvað meira stylized.

Haukur
Ég hef verið flura í rúmlega 10 ár. Ég held mig mest í old school traditional mér finnst einfaldleikinn í trad, sexy og skemmtilegur. En ég geri japönsk verk inn á milli ef það hentar báðum aðilum.
Hjá mér snýst þetta ekki bara um flúr, heldur stemningu. Ég fíla þegar þetta er afslappað, spjallið flæðir um allt og ekkert og endar oft aðeins dýpra en maður bjóst við. Þetta á frekar að vera eins og að stíga inn í smá fríríki en eitthvað stíft “session”.
Og ef við náum að brjóta upp hversdagsleikann á meðan og gera daginn aðeins skemmtilegri – þá erum við að gera þetta rétt.


Ívar
Ég hóf feril minn sem lærlingur á einkastofu í Danmörku árið 2013 og hef komið mér ansi langt síðan þá. Ég hef flúrað ótal marga og málað fjölda málverka. Lærimeistari minn var mjög hands-on, sem hjálpaði mér að móta mig og finna minn stað í listheiminum.
Uppáhalds stílarnir mínir eru traditional, neo-traditional, blackwork og fineline, og ég tek einnig að mér black & grey af og til. Þegar kemur að traditional er ég bæði hrifinn af gömlu amerísku „old school“ stefnunni og evrópska stílnum.
Frá því augnabliki sem viðskiptavinur hefur samband um hugmynd þá hefst ferlið.

Hugo
Ég hef starfað sem flúrari í 6 ár, ég hóf ferilinn minn út í Portúgal. Ég sérhæfi mig í blackwork og illustrative hönnunum, og nota stundum litaáherslur til að lyfta verkunum mínum. Ég hef líka mikinn áhuga á að vinna með ólík verkefni utan þægindarammans, sem gefur mér tækifæri til að kanna nýja stíla. Megináherslan hjá mér er ánægja viðskiptavinarins og að skapa frumlegt flúr.


Andri
Ég er flúrari með þriggja ára reynslu og hef mest gaman af að vinna í realism og dotwork. Ég legg áherslu á vandaða vinnu og að hvert flúr sé persónulegt og vel útfært.
Líðan og upplifun kúnnanna minna er alltaf í fyrirrúmi, og ég legg mig fram við að skapa þægilegt og traust umhverfi í hverri setu.

Það sem fólk er að segja
Kristjana SvansdóttirFór til Siggu í dag (24.07.24) og þvílíkur snillingur og meistari. Ein mesta kósýstund sem ég hef upplifað þrátt fyrir sársaukann og svo vel hugsað um mann. Sigga og Gísli eru meira en yndisleg og með frábæra viðveru. Mæli 150% með.
Reykjavík, Íslandi
Sjáðu fleiri umsagnir okkar á Google.

